Já þetta er satt hjá Guðrúnu... þetta er algjört hneyskli að
vera ekkert búin að skrifa í heilan mánuð og nokkra daga. Skal bæti
úr því lömbin góð...Fyrst eitt langt blogg! 
Er samt búin að pæla í nokkra daga að blogga... ég hef aldrei komið
mér til að byrja.
Sit núna hérna og ofhlusta á eitt lag sem ég
hef lengi ætlað að downloada. Það hefur ekki hjálpað neitt...
komnir 2 tímar af ofnotkun...okay slökkti. Byrjar vel þetta
blogg...NOT 
Okay get to buisness.
* Ég átti afmæli fyrir mánuði
og af leti og þreytu þá gerði
ég ekki mikið en samt góður afmælisdagur. Takk allir sem mundu
eftir mér! 
*Fór á POTC í bíó og horfði á ALLAN kreditlistann út af lokaatriði
sem var víst þarna aftast. Sé ekki eftir að hafa beðið.
Okay svo kom að því að við Þórunn færum í heimsókn til Önnu til
Þýskalands sem við höfðum planað síðan í Apríl.. vorum að fríka út
seinustu vikuna.
Alla vegina fórum suður á sunnudeginum 10 og eyddum svo mánudeginum
þar líka. Við hittum stelpurnar, fórum í Kringluna og fórum ekki að
sofa fyrr en feitan konan var LÖNGU farin að sofa
Takk fyrir
tímann í Rvk.
*12.júní, ferðadagur: Sváfum í 2
tíma áður en við drulluðum okkur á fætur kl 5 eða eitthvað til að
mæta í BSÍ-rútuna. Fórum frá Keflavík-Frankfurt og svo var komin
til að redda okkur til Önnu. Svindlað á okkur af því við borguðum í
sitthvoru lagi lestamiðann... geri það ekki aftur, piff! Frá
Frankfurt til Nürnberg og þá höfðum við ekki hugmynd hvað við áttum
að gera þar sem allt var á þýsku en við snillingarnir gátum
auðvitað reddað hlutum og komust hálftíma seinna til Erlangen þar
sem Anna beið okkar á lestarpallinum.
Skoðuðum örlítið göngugötuna og fórum svo á skólavistina þar sem
Anna sýndi okkur ódýran bjór úr sjálfsala og drukkum hann með
jarðaberjum á einhverju videokvöldi vistarinnar.
13 júní: Fórum í bæinn og VERSLUÐUM,
alla vegana er það eina sem stendur í bókinni minni þann daginn.
Svo um kvöldið var vistarpartý sem var Óhemju skemmtulegt þar sem
við kenndum strákunum "skál í botn og restina í hárið" þó þeir
greyin tóku því bókstaflega og við lærðum "X"
.
14.juní: Morguninn...hrynjandi
leiðinlegur og stelpurnar að neyða mig með sér í lest til Bamberg
sem var ekki svo langt frá. Sé samt ekki eftir því að hafa fengið
spark í rassinn 
Bærinn var ótrúlega fallegur og svo þegar við vorum langt frá
miðbænum kom þessi brjálæðis rigning og ég sem fór í hlýrabol út
þar sem ég hafði verið að kafna úr hita mest allan tímann.
Fundum svo eftir að hafa hlupið meðfram húsum í smá tíma lítið
kaffihús og ætluðum að fá okkur heitt að drekka. Gaurinn sem var
ítalskur brosti og var alveg "Expresso, perfecto!" hehe Ég sagði
bara já þar sem ég hef smakkað það heima og það hefur ekkert verið
svo sterkt. Já nei nei!
Ég hef aldrei smakkað eins viðbjóðslega
sterkt kaffi og Anna sagði að ég liti út eins og páfagaukur í fýlu
við hvern sopa.
Endaði með að ég gat ekki meirr. Já
rigningunni lauk eftir svona hálftíma. Veður dagsins sól og rigning
þegar líður á daginn og hláturkast með köflum 
Um kvöldið hittum við íslenska stelpu sem býr í Erlangen og
spjölluðum aðeins við hana áður en við fórum í eitthvað útipartý
rétt hjá vistinni hennar Önnu. Svo kom aftur þessi skemmtilega
rigning og flestir hlupu inn nema sum hörkutól eins og við sem
skemmtum okkur ágætlega úti í rigningunni. Þar sem við vorum orðin
nokkuð blaut á því að standa þarna úti ákvað Anna bara að fara í
vatnið sem var þarna sem er eitthvað mjög ógeðslegt en það er
einhver stemmari eitthvað...I dont know. Alla vegana það er
vodkapeli settur þar og hann sem sækir hann fær að eiga hann og
eitthvað. Anna fékk alla vegana skot á línuna þannig 
15.júní: Vöknuðum snemma þar sem við
ætlum heim með Önnu til Passau. Dagurinn fór í lestar og syngjandi
íslensk lög með stæl. Sko X-factor hvað?!
Fórum á kaffihús og
drukkum kokteila á minna en 450 kr..
Hætt að drekka á Íslandi.
Hræddum Þórunni með skordýrum og axarmorðingum...ALGJÖR Snilld!

16.júní: Gengum um göngugötuna í
Passau og fórum á kaffihús, átum yfir okkur af SÚPER góðri
jarðaberjaköku og kíktum svo yfir til Austurríkis með pabba Önnur
og bróðir hennar.
17 júní: Fórum í skoðunarferð um
Passau...okay held að Austurríkisferðin hafi verið þennan dag
úpps ég man ekki. Alla vegana hún var þessa helgi
Horfðum á
"Allt á hreinu" með Önnu. Gaman að sjá hvað öðrum finnst um
íslenskar myndir.
Borðaði svo aftur yfir mig af jarðaberjaköku sem var ekki svo gott
í þetta sinn því við þurftum að ganga í þessum brjálæðislega hita á
lestarstöðina því við vorum aftur að fara til Erlangen. Fékk þó
ekki samviskubit af öllu þessu kökuáti
Geri það heldur ekki!
18.júní: Versluðum meirr og fórum svo
í íslenskutíma með Önnu sem var nokkuð fyndið. Versluðum svo meira
og fórum svo á eitthvað kaffihús þar sem þar var Íslands-hittingur,
fólk sem er að læra íslensku eða hefur verið á Íslandi. Þau voru nú
ekki mörg en samt mjög gaman að hitta þau. Fórum svo á vistina og
drukkum hvítvín sem kostaði minna en 180 kr.
180 kr fyrir
hvítvín?!! Er ennþá að ná þessu.
19. júní: Tími til að fara heim en
náðum þó enn og aftur að eyða nokkrum mín. í að versla... but of
course!
Vorum betri í þessu núna en seinast að ferðast með
lestinni en samt gaman. Já saga... hlupum inní lestina og þvílíkur
hiti...það var svona 30°C úti og örugglega 40°C þarna inní
klefanum. Svo kom lestarvörðurinn og sagði okkur að það væri
betra öðrum vögnum og við færðum okkur þangað..fundum svona klefa
eins og í Harry Potter eða Eurotrip. Snilldin ein!
Okkur boðið
upp á kaffi og allt ótrúlega flugvélalegt, meira segja
lestarvörðurinn talaði stundum og þakkaði fólki fyrir ferðina sem
væru að fara út og svona. Lestar í Þýskalandi bara góðar.. hélt að
ég væri á fyrsta farrými það var allt svo fínt.
Flugvélin heim var Bandarísk og því allt miklu skemmtilegra, ný
mynd og engin brokkólí eitthvað heldur bara fínasta svínakjöt, yes
yes!
Flaug heim til Ísafjarðar snemma næsta morgun og byrjaði að vinna
kl. 13
Alla vegana ferðin gekk út á..
*helling af lestum
*hita og svita
*VERSLA
*endalausum aulahúmor og meðfylgjandi hláturköst. 
*ódýrt áfengi og halda uppi rassi
já og helling af góðum
mat.
Setningar ferðarinnar..:
*"X and the rest in the hair."
*"Þú ert dauður!"
*"Heyrðu Þórunn...Ég ætla að drepa þig. (mjög rólega)"
*"Já já og þá er ég axarmorðingi."
(A.T.H. engin dó í þessari ferð, nema held ég
ein lítil eldfluga
)
TAKK STELPUR FYRIR FERÐINA!
Jamm hef svo ekki neitt mikið dregið á daga mína síðan ég kom
heim, ef ég hitti einhverja þá er það í vinnunni, hitti reyndar
Tinnu og Þórunni seinustu helgi, gott fjör þar á bæ.
Jæja komin til að drepa ykkur ekki meirr á þessu.... ég er alla
vegana komin aftur! 
Stay tuned og skjáumst síðar!