Comedy is simply a funny way of being serious

Det var så lidt

24.10.2006 18:40:02 / Músin

Mobile

Mynd062.jpeg sjaid tid eitthvad skrytid vid tetta?? Eda er eg svona skrytin

» 8 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 13:36:02 / Músin

Mobile

Mynd010.jpeg on a roadtrip..

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 23:12:47 / Músin

Auglýsingar...

Var að pæla aðeins í þessum blessuðu auglýsingum þar sem ég horfist "örsjaldan" á sjónvarp ;)

Eins og þessi Vanish White þarna..."má ég sjá þessa gráu skyrtu sem þú er í?" -" ehh..hún er eiginlega hvít." Alla vegana.... þær setja tómatsósu í skyrtuna og eitthvað og svo dýfa henni ofan í bara helmingnum ofan í. Svo kemur 6 tímum seinna... :$
Ég var að pæla hefur konan tíma til að bíða svona lengi... að mér sýnist er konan að fara að ganga inní verslunarmiðstöð eða eitthvað. Þar sem hún fær einhvern bol til að vera í meðan þær sýna henni þetta stórundur. Annað.... hefur hin konan líka þolinmæði eða styrk til að halda skyrtunni upp í 6 tíma???

Svo var önnur sem var algjörlega vit í... eitthvað um mýkt og allt tengt því,sem tengdist allt eitthvað ástinni... Mér fannst bara nokkuð vit í henni. Var bara þú veist já það er nokkuð vit í þessu og nokkuð góðir punktar.
Svo kemur bara í endirinn Ariel.... sem sagt auglýsa mýkt í þessu fína þvottaefni.
Það alveg fékk mig til að hætta að pæla í þessum fínu pælingum sem voru í þessari auglýsingu.

Jahh er að fara að setja ofan í tösku, réttara sagt bakpoka. Er að fara suður yfir helgina að hitta Uldum fólkið góða þar sem Miss Japan er að koma til Íslands á Airwaves. Hún er reyndar komin en ég gat ekki alveg farið frá vinnunni strax.... Þannig hálfpartinn frí á morgun.. bara vinna 6-9 :) OMG hvað ég hlakka til að hitta þau öll!!
Svo náttúrulega hitta Önnu grænubaun og þá sem verða á vegi mínum. Bríet is in town 8)

Skjáumst eftir helgi.
p.s. ég er oft að reyna að ná þessari barnamynd til að virka... hún er annars á myndasíðunni ef ykkur langar að sjá.


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 20:03:50 / Músin

Barnið í sjálfri mér....

Prófa þessi nýju stillingar... mér finnst þessi nokkuð nett :)

Föstudagurinn 13 var mér ekki slæmur... bara svona fyrir þessa hjátrúarfullu.

Alla vegana..þessi dagur var nokkuð spes að vissu leyti.... Ég var að keyra út í fyrsta sinn :$ og var að vinna allan daginn án pásu.. Nei þetta er ekki þrælavinna, stundum verður maður bara að gera hlutina svona þegar það er ekkert annað í stöðunni. Ég er heldur ekkert þreytt þannig því ekki? :)
Jamm var að keyra út... úff hvað ég sukka í þessu! :S Þar sem ég hef aldrei keyrt sendiferðabílinn þá var ég það heppin að foreldrar mínir vildu lána mér bílinn
Punktar ferðarinnar...
* ég náði 1/4 partinn að loka mig inni í grænmetiskælinum í Bónus :S
* útklóraði sjálfa mig
* fékk Bjarka til að hjálpa mér smá... hjálpaði mikið
* stoppaði í svona hálfa mín. í 2 bílstöðum fatlaðra (hálf mín. dont kill me for that... )
* hjálpaði litlum strák að finna rjóma

Annars svona hef verið að pæla í þessu að finna barnið í sjálfum sér. Þegar maður hegðar sér kannski smá kjánalega en maður er að skemmta sér... er maður þá barnalegur? :S Hvað er barnalegt? Hver segir hvað er barnalegt og hvað ekki? Er maður er barnalegur ef maður er ánægður í einhverjum fötum sem eru ekki í tísku? Er það barnalegt að stoppa og reka út úr sér tunguna þegar það snjóar eða einfaldlega að vaða aðeins í pollunum á leiðina eitthvert? Ég er ekki þó ekki að segja að ég geri það en það kemur fyrir að það poppar upp í huga mér. :$
Fann þessa barnamynd í gömlu vegabréfi... varð bara að deila henni með ykkur. ;)

Eruð þið að sjá þetta hár?! 8| Ég var virkilega með svona frjálst hár þó ég man að mamma reyndi best hún gat að "sleikja" hárið á mér saman í tagl. Dugði í mesta lagi 5 mín.:$ Var meira segja með tagl á þessari mynd hehe... Svona hár var ég með í mörg ár... og ég er að kvarta undan liðum núna. Never again! ;) Þessi föt... jahh ég var nú ekki cool þegar ég var 9 ára en hver á svo sem að vera cool 9 ára? Náttúrulega út í hött föt sem engin 9 ára gamall núna myndi láta sjá sig í en þetta fannst mér gott að vera í og líkaði þetta vel... grænt og bleikt, bestu litirnir þá ;) Held meira segja að peysan sem ég var í undir hafi verið með uppáhalds peysunum mínum þennan ákveðna tímapunkt.:)  Gaman að þessu.....
Jahh þetta er alla vegana barnið í sjálfri mér ;)

Alla vegana... skjáumst síðar



» 5 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 10:50:45 / Músin

Ananas og möndlur

Wassup? jahh hef ekki verið neitt voðalega dugleg að blogga en ég hef reynt að bæta það upp með myndabloggi. :S Samt allt eitthvað snjór og eitthvað.... Samt snjórinn er eiginlega farinn, bara mæstum ekkert eftir, smá í fjöllunum. Var næstum búin að gleyma hvað Ísafjörður getur virkilega verið fallegur. *skamm skamm*

Hvað hef ég svo gert merkilegt síðan 4 október... jahh :$....vinna. Jahh ég er alla vegana ekki pirruð meirr.. endist í einn dag eða eitthvað. Ekkert að vera að velta sér upp úr svona vitleysu. Lífið er of stutt til að veldast upp úr pirringi og svoleiðis rugli.
Mamma og pabbi fóru líka í vikufrí og ég var "ein" heima með Jóakim.
Jamm og tíminn bara fljótur að líða.... sagði óvart góða helgi við einhvern á þriðjudaginn :$ úpps

Jamm svo hef ég verið að pæla nokkuð í jólunum... hva? 72 dagar til jóla? Þetta er farið að koma í bakið á mér. Það er samt allt of snemmt að hugsa um jóladót og svona en það er ekki of snemmt að pæla í hverjum á að senda jólakort, hvaða jólagjafir maður á að gefa jahh og annað en svipað hvort maður eigi að búa einhverjar til.... Muna þó að eyða ekki of miklum peningum í nóvember svo ég get pottþétt keypt jólagjafir jahh eða bara eitthvað cool þegar maður kíkir í danaveldið again.
Já annað... prentarinn minn sem ég hef átt í 1 og hálft ár dó jahh eða svona næstum. Það alla vegana borgar sig ekkert að laga greyið.:| Þannig núna er ég prentaralaus. :S  Eru allir hlutir núna hannaðir sem endast bara í hálft ár eða eitthvað og hrynja svo?? Jahh tölvan mín er búin að hrynja einu sinni eftir eitt ár því ekki... Ég man t.d. að við áttum fínt sjónvarp alveg í 12 ár eða eitthvað án þess að það bilaði eitthvað alvarlega...minnir meira segja að það hafi ekkert bilað. :$ Þýðir þetta kannski að við förum verr um hlutina okkar en við gerðum í gamla daga?? Hmm...

Heyrðu jú ég gerði svolítið í gær sem ég geri ekki dagsdagalega en það verður kannski eitthvað dagsdaglega núna.... Ég fór í göngutúr með pabba eftir vinnu í gær. Ég var líka svo þreytt eftir daginn að ég sofnaði með ljósið kveikt og tölvuna hliðin á mér úpps :S Jahh ég er alla vegana búin að venja mig að nota bara helminginn á rúminu mínu.

En jamm það er föstudagurinn 13... ú spúký! Ætli það muni gerast eitthvað í dag óvelkomið...jahh kemur í ljós dagurinn er rétt að byrja. Kannski ég ætti ekki að prófa að klára málverkið mitt. Það gæti endað með ósköpum... jahh eða öll þess óheppni fari í plús...
Jahh eigum við kannski að telja það með að ég þurfti að mæta í vinnuna klukkan 6 en ekki 11 óheppni og að ég sé í mat frá hálf 10 til hálf 12? Nahh... auka peningur ;)
Líta á björtu hliðarnar...

Jæja hætt í bili... 25 mín. þangað til ég að mæta aftur og ég eftir að dúndra niður nokkrum armbeygjum eða eitthvað.
Later dudes! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 09:22:01 / Músin

Mobile

Mynd062.jpeg mynd ùr gardinum mìnum. Skildi veturinn vera kominn..?

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 10:38:04 / Músin

Mobile

Mynd061.jpeg 70 og eitthvad dagar til jòla.. Veit ekki hvort eg eigi ad gledjast eda tárast.. Makeupid tárast alla vegana

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 05:48:02 / Músin

Mobile

Mynd060.jpeg Brìet var ein ì heiminum

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 16:10:02 / Músin

Mobile

Mynd060.jpeg omg! Tau eru bara næstum komin

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 23:41:44 / Músin

Gingsen eða bara of langt farið yfir strikið??

Vá hvað tíminn er fljótur að líða! Það er 4.október... já ég veit og ekki ennþá komið blogg um Afríku. Það er kannski ekki lengur spennandi, þið segið mér..
Jahh hef nú ekki gert neitt mikið síðan á miðvikudaginn...
Fór í glerið á fimmtudaginn, missti alveg sköpunargáfuna í þessari viku.:| Skálinn sem ég gerði seinast á undan var virkilega eins og ég hafi fengið blóðnasir og snýtt því á gler. (Engar áhyggjur Bjössi, það er ekki skálin þín...) En svona í alvöru... hún var frekar ófögur. Reyndi að gera betur á fimmtudaginn....vonum að það heppnist
Jahh föstudagurinn byrjaði klukkan 6 og fékk þennan besta matartími í heimi... hálf 9 til hálf 11... ég fékk þó mína 2 tíma :)
EKKERT kvart. ;) Kom heim eftir vinnu og gerði nú ekkert sérstak... man það ekki einu sinni :$ alla vegana sofnaði svo eitthvað um 12 leytið í öllum fötunum, með ljósin kveikt og sjónvarpið og með tölvuna hliðan á mér (hafði þó rænu í að slökkva á henni áður en ég sofnaði). Úpps!! :S
Laugardagurinn... var í fríi...nice :)
Svaf svona út eins og ég gat bara... sofnaði aftur og kom mér fram úr um 13 leytið eða eitthvað. Mamma og pabbi voru á leiðinni í Hafnarbúðina út af einhverju og buðu mér með. Því að neita þegar maður hefur svo sem ekki svo mikið að gera... Jamm hvað á ég að segja ykkur... ég keypti peysu, rauðbleika puma peysu og það kemur ykkur líklega ekki á óvart að hún er hettupeysa. Hún var bara svo cool!! Gat ekki látið hana fram hjá mér fara.... :$
Eyddi svo deginum bara mest í chill og svo var ég að hjálpa pabba að skanna inn myndir sem fer svo í að laga þær aðeins til og prenta út eftir.
Horfði svo á stöð1... já það gerist. Var nokkuð gaman að horfa á þetta um sjónvarpið ég meina hvað er ekki spennandi um sjónvarpið ;) segi svona. Var samt svona smávægis að pæla í því hvort íslenski húmorinn hafi versnað með árunum... ??:SMér fannst þegar það var verið að gera grín af gömlu auglýsingunum bara ekkert fyndið, fattaði bara þetta ekki. Annars fannst mér þetta fínn þáttur sko!
Jamm sá lika fyrstu jólaauglýsinguna í fréttablaðinu minnir mig... heil síða “Rýmum fyrir nýjum jólavörum... JÓLAÚTSALA!!”  30. september?! Reyndar...að maður sé farin að pæla smá vegis í jólagjöfum og svona þar sem ég ætla að reyna að föndra nokkrar... en okey, mér finnst það smá of snemmt. Það er samt langt síðan við komum niður í tveggja stafa tölu...hmm.. æ ég veit ekki! :$
Sunnudagurinn.... fór mest í leti. Ætlaði að reyna að prenta út myndirnar fyrir pabba... já nei nei! Prentarinn minn vildi ekki virka.. bara allt bleikt og  litlar myndir. Urr...! Minnir að ég hafi ekki gert neitt meira...
Mánudagurinn... afhverju man ég þetta ekki?? Ég var alla vegana bara í vinnunni.. frekar rólegur dagur. Jú! Við mamma fórum með prentarann til á kíkja á hann.. þarf ekki bara að senda tækið suður. Ég sem var að setja nýtt blek í hann...
Þriðjudagurinn... fékk að sofa út.. nice! Vaknaði svo við símann minn en gat ekki ýtt á takkann þvi þumalinn festist.. varð að taka 3 “tilfingur”. Mér fannst það fyndið.... :$ Átti svo að panta miða á Sir Cliff Richard í morgun kl. 10. Ég fór á slaginu og þá var búið með alveg helling af miðum og meðan ég var að slá inn kortanúmerið þá var tekið þeir miðar sem ég fékk í upphafi. Hvaða rugl er það?! Það er eiginlega frekar ósanngjart!! En ég fékk miða alla vegana á því svæði sem mamma bað um þannig gott mál ;)
Eyddi smá peningum í dag líka... keypti mér flakkara. Ég ætla sko ekki að láta hlutina hrynja og eiga ekki eintak af þeim eitthvers staðar.. no freaking way!  Fattaði svo þegar ég var komin út úr búðinni að þessi fíni flakkari sem ég keypti er svona í laginu eins og kubbur, nokkuð nett! :)

Fékk mér tea í gærkvöld sem er náttúrulega ekki frásögu færandi nema það var með koffeini...Bríet!!. Segjum bara að ég hafi ekki náð að sofna fyrr en hálf 3 í nótt. Vöknunartími: 5:05
Dagurinn í dag.... Náði að vakna... jamm þetta gat ég. Mætti í vinnuna, sem ég er farin að gera 5 mín. fyrir þannig það getur engin kvartað undan því... en alla vegana mætti og á þá er hálf öskrað á mann að það sé bannað að nota ákveðna poka sem mér b.t.w. hafði aldrei verið sagt. Ég líka hálf öskrað til baka bara “hver segir það?!” Manneskjan b.t.w ekki svo sátt við að ég svari einu sinni fyrir mig... Skemmti mér líka það mikið í vinnunni í morgun að ég sagði varla orð við aðra nema kúnana.. takk fyrir pent....  Geri mitt besta að vera dugleg í dag því við erum einni færri en vanalega þó þetta reddist alveg... en dugleg var ég og ég meina ég hélt eiginlega kjafti... does that not mean anything? Öll mín orka fór í að vinna. (þið ráðið alveg hvort þið trúið mér eða ekki... )
Jæja fer í mat þarna 10-12...frekar þreytt en nenni svo ekki að sofa. Náttúrulega líka gítartími sem var barasta mjög gaman í. Kennarinn var ekki með gítarmagnara í herberginu þannig við spiluðum bara á bassa í dag. Bara gaman sko!
Mæti í vinnuna aftur frekar róleg eftir gítartíma eða segjum bassatíma... já nei nei. Fæ ég svo ekki að heyra það að það sé verið að kvarta undan mér og annarri... að við stöndum okkur ekki nógu vel bla bla... við hlustum aldrei (á hluti sem b.t.w. eru ekki sagðir... hvernig er hægt að hlusta á ósagða hluti...  með hugarorkunni?) Svo er maður bara ranglega sakaður... það væri örugglega hún Bríet Ruth sem gerði það. URR!! Svona fólk....  Mér fannst bara í dag að núna gæti þetta ekki gengið lengur og svaraði bara smá fyrir mig... þó ekki við manneskjuna sjálfa.  Ætli þessi hlið komi upp af öllu þessu gingseni sem ég er búin að drekka?? :S Mæja frænka heldur það alla vegana...  að maður verði “svolítið” ör af gingseni. Getur verið... I dont know. Það útskýrir það alla vegana...
Eyddi svo deginum eiginlega hálf pirruð yfir þessu öllu....

Okey vá... svolítið langt blogg. Þú sem náðir að lesa þetta allt... TIL HAMINGJU! ;)
Skjáumst síðar!!

(p.s. kann ekkert að laga þennan mun á leturstærðinni...:S)


» 4 hafa sagt sína skoðun


Klukkan