Jahh tók mér loksins tíma til að skrifa þó ég ætti ekki að vera
að þessari að vitleysu. Það er óhemju margt sem ég þarf
að gera og blogga er EKKI eitt af því.
Málið er líka... loksins er ég komin hérna og ég man bara ekkert
hvað ég ætlaði að segja ykkur hérna...úps
Er alltaf bara í vinnunni, fékk þó smá frí í dag að kaupa
nokkrar jólagjafir því ég hef hálfpartinn bara viku hérna heima því
ég er að fara til Danmerkur 11. desember. Það er svo langt síðan að
ég byrjaði að telja og langt síðan að ég hætti að telja að ég er
ekki alveg að fatta að það séu bara 10 dagar þangað til ég sest upp
í flugvél til að fara til Danmerkur... eiginlega 9,klukkan alveg
endalaust margt.
Hmm... jahh ég er með kaupæði. Það var svona markaður í gær jahh
og reyndar í dag líka... alla vegana fór þangað og fann þessar fínu
diesel gallabuxur..10.000 kr afsláttur. Gat bara ekki neitað
sjálfri mér um þær.
Ég er eiginlega svolítið of lin við sjálfa
mig... þarf að hafa meiri sjálfsaga! Já fékk líka bolinn minn í gær
sem ég var búin að panta fyrir löngu..Ekki fínn bolur... svona my
kind of t-shirt sem er með einhverjan móral eða eitthvað.
Ég er farin líka í bókstaflegri merkingu að tala við sjálfa
mig.... lá hálf meðvitundarlaus hérna uppí rúmi og fannst vera
sofandi.... heyrðu svo eitthvað í fjarlægð sem ég skildi bara ekki.
Hélt því þá bara áfram að sofa... heyri ég þá svona "Hey! það er
verið að tala við þig." með rödd sem ég kannast ekkert við svo sem.
Opna samt augun og kalla "ha?" Þá var mamma að tala við mig og
spyrja hvort ég ætlaði ekki að fara að sofa því hún hélt að ég væri
ennþá vakandi.Mamma var samt ekki að kalla á mig þetta
hey-dæmi...Frekar furðulegt maður!! Farin að vekja sjálfa mig
sem er nokkuð fyndið.
Jahh hef ekkert eða nenni ekki að segja meirra... það er þunn
lína þarna á milli.