Comedy is simply a funny way of being serious

Det var så lidt

26.01.2007 22:41:19 / Músin

Kjúklingar,beljur og kakómjólk....

Fyrst og fremst takk fyrir ÖLL kommentinn! :) Ég verð greinilega að fara að kvarta oftar... :$
Til að tala meira um hana þá daginn eftir hringdi blessuð konan og en ég talaði við hana þó mér líkaði það ekki neitt skal ég segja ykkur.. Eina sem ég fékk upp úr þessu samtali er hvernig ég get talað eins og konan.
Svo í dag þá svaf ég yfir mig.. omg skiluru það gerist alltaf skiluru. Alla vegana byrja að hlaupa niður í bæ, já krakkar mínir 8| Þó ekki lengi þar sem augun voru ekki alveg komin í samband við allt kerfið smá út úr fókus... jahh alla vegana sé ég ekki blessuðu konuna koma á móti mér. Ég reyni að vera geðveikt cool, set mitt flotta göngulag upp, læt rigna upp í nefið á mér og geng fram hjá henni. Ég var samt að íhuga að fara í "chicken" við hana. Já ég er SMÁ klikkuð í hausnum.:$
Nei ég ætla að vera kurteis... ég verð ekkert betri við að klessa á blessaða konuna nema ég gerði það náttúrulega að takmarki að fella alla vegana niður eina eldri konu á hverju ári. JÁ...8| Ég hrindi konu í götuna í fyrra! EKKI það sem vildi gera og er EKKI stolt af, ég er þó tilbúin að segja ykkur frá þeirri sögu ef þið viljið... BARA ef þið viljið.

Annað stórmerkilegt í lífi mínu er að ég sá nýja fernu í dag... nýja kakómjólkin. Ég tek mynd af henni við fyrsta tækifæri ;) Bragðið minnir svolítið á mathildu, kakómjólkina í DK. Já ég er mjög veraldarvön 8) Það sem ég ætlaði þó að tala um þó að það er belja á fernunum. Náttúrulega ekki skrýtið þar sem mjólk er úr kúm ( takk takk ég tek við nóbelsverðlunum núna) En kúin minnir svolítið á blessuðu kúnna á cartoon network í þarna "Cow & Chicken".... er ég bara að tala um dýr í þessari færslu? "Suuper cow!!!" :) Kannski er ég bara að ímynda mér og þær kannski ekki NEITT líkar....

Þetta var bara pæling...
skjáumst síðar.


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 12:40:17 / Músin

"Sorry... ekki taka því persónulega. Whatta f**k?!

Okey það er komin tími til að kvarta smá þrátt fyrir að ég ekkert mikið pirruð og ég ætti kannski að vera.... ef ég hefði verið i vondu skapi þá hefði þetta endalaust farið í mig og þá hefði ég gert annað en bara að kvarta á síðunni minni.

Alla vegana var í vinnunni áðan og kona kemur inn og spyr um ömmu sem er ekki við því hún var að panta eitthvað "spes". Ætla þá bra að athuga hvort mamma séð við eða eitthvað en á meðan er hún eitthvað að kalla á Kristrúnu sem er b.t.w. í símanum. Þannig ég fer til baka og reyni að athuga hvort ég geti hjálpað henni. Þá koma inn einhverjir 2 strákar og þar sem ég er að tala við konuna þá ætlar Kristrún að afgreiða strákana en áður en hún kemst eitthvað þá bendir konan á hana og segir: "Ég vil frekar að hún afgreiði mig.Sorry...ekki taka þessu persónulega."8| Ef ég á ekki að taka þessu persónulegu hvað þá? Þetta er endalaust persónulegt! Endalaus dónaskapur!! :frown:
Ég viðurkenni alveg að ég tek hlutum inn á mig og fólk sem þekkir mig veit það en svona er eitthvað sem maður íhugar að taka inn á sig.  Sem betur fer var ég ónæm í dag... já það gerist.  Þrátt fyrir ónæmið mitt í dag finnst mér þetta hálf dónalegt.

Svo í morgun kom karl sem er víst alltaf eitthvað voðalega "fyndinn". Missti næstum móral dagsins að tala við hann. Alla vegana hann bað um c.a. eina kókómjólk. Ég var aðeins að pæla í þessu...c.a. eina kókómjólk. Mætti ég þá opna kókómjólkina og drekka smá af henni? Það myndi honum ekki finnast fyndið...ha! I would show him!!

Ég gæti haldið lengi og vel ræðu yfir svona fólki og örugglega ekki ein um það en ég varð aðeins að létta af mér þessu nöldri.


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 23:26:31 / Músin

It makes me mad= ég bý til minn mat


Komin aftur... duglegri en fyrr fyrir utan að troða bloggi hérna... það er annað efni. Búnar 2 vikur af árinu 2007... tíminn er lengi að líða en samt ekki. Það er kannski bara af því hvað ég er rugluð í dögum. Sjónvarpið mitt blessað segir mér hvaða dagur er. Talandi um blessaði sjónvarpið... það er svo mikið finnst mér á kvöldin í því að ég hef náð því að sofna aldrei fyrr en eftir 1 ef ekki bara 2 þrátt fyrir að ég þurfi að drulla mér í vinnuna kl. 6 :S Sef líka alltaf í matartímanum mínum sem er gott mál því ég er í mat í 2 og hálfan tíma... hversu nice er það. :) Og talandi um að aðra hluti samt þá sofnaði ég í matartímanum á föstudaginn eða eitthvað án vekjarklukku...mikil áhætta. Alla vegana næ að dreyma þarna á 10 mín eða eitthvað að þennan mikla og stóra draum sem endar að ég er að hlaupa undan löggunni eins hratt og ég gat þar til mamma stoppaði mig og sagði mér að hlaupa í hina áttina og sjá um hvað væri að vera þó ég vissi alveg afhverju allt þetta vesen væri. Á þessum tímapunkti var ég búin að hlaupa svo mikið og þessi hræðsla alveg á suðurpunkti að hjartað á mér var komið á fullt. Vaknaði þá og sá að ég hafði sofið aðeins lengur en ég ætlaði.. 5 mín. í vinnu og það tekur mig svona 10. mín í vinnuna. Hljóp út..hjartaði hamaðist ennþá. Til að gera langa sögu stutta þá hamaðist hjartað á þessum hraða í svona hálftíma lengur þannig ég næstum henti hlutunum í kúnnuna því ég var ennþá á þessum öfsa hraða :S SVO óþægilegt að vakna svona. Alveg stórskemmtileg saga :$
Fór svo í klippingu á fimmtudaginn seinasta... Ég hef aldrei á ævinni hlakkað eins mikið til að fara í klippingu. Ég var virkilega komið með sítt að aftan hágreiðslu. "buisness in front, party in the back" Hversu ljótt er það? Alveg helling!! :) Er komið með betri hárgreiðslu og svona fínar gylltar strípur. :) Hef aldrei verið með svona ljóst hár áður... ég meina ég hef verið með rauðar og brúnar strípur en aldrei svona ljósar neitt. Laugardagurinn var góður... svaf reyndar mjög lítið og svo þegar ég ætlaði að snozza smá lengur þá fékk ég fallegt blóðnasir sem rak mig fram úr... stubid blóðnasir! Var í vinnnu til kl. 12 og fór svo beint heim að prenta út og laga myndir fyrir pabba sem hefur setið ótrúlega lengi á hakanum :S Náði að klára þetta allt eitthvað um 16 með smá pásu. Fór svo niður í kjallara því það var víst til meira af gömlu skóladóti sem ég þurfti að taka til í. 8| Samt sem áður bara 2 skólatöskur. Með hjálp mömmu náði ég þessu á einum og hálfum tíma. Skólabækur frá 6 bekk uppí 3 bekk í menntó minnir mig. Í gær hitti ég líka Þórunni A, Þórunni B og Kötlu. Hittumst heima hjá Þórunni A. og fórum svo á Krúsina. Aldrei farið á djammið af þessari ástæðu... afþví-bara-ástæðan. Mér fannst bara gaman þó ég hefði verið óskhyggjandi að ég hefði verið í leðurjakkanum eða eitthvað annað en dúnúlpu. Það er greinilega betra að vera cool en að vera hlýtt. Verð að muna það næst. Ég er svo mikill loser!
Í dag er bara farin í að gera ekki neitt... hef eiginlega verið allan dag undir sæng og allan daginn bara í náttfötunum. Gerði þó eitt mikið í dag og það var að klára málverkið mitt sem hefur tekið LANGAN tíma. Það er nú ekki alveg frábært eins og ég vildi en það er ágætt eins og það er. Fagnaði því með sjálfri mér áðan :)

Að lokum þýðing vikunar : It makes me mad= Ég bý til minn mat. :lol:hehe Fann þessa þýðingu í enskubók hjá mér í 8 bekk sem gerir mig hvað 14 ára.:$ Já ég hef nú lagast smá í ensku síðan þá :)

Þangað til næst... skjáumst síðar!


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 21:05:04 / Músin

"Savin' Me" -Nickelback

Prison gates won't open up for me
On these hands and knees I'm crawlin'
Oh, I reach for you
Well I'm terrified of these four walls
These iron bars can't hold my soul in
All I need is you
Come please I'm callin'
And oh I scream for you
Hurry I'm fallin', I'm fallin'

[Chorus:]
Show me what it's like
To be the last one standing
And teach me wrong from right
And I'll show you what I can be
Say it for me
Say it to me
And I'll leave this life behind me
Say it if it's worth saving me

Heaven's gates won't open up for me
With these broken wings I'm fallin'
And all I see is you
These city walls ain't got no love for me
I'm on the ledge of the eighteenth story
And oh I scream for you
Come please I'm callin'
And all I need from you
Hurry I'm fallin', I'm fallin'

[Chorus]

Hurry I'm fallin'

All I need is you
Come please I'm callin'
And oh, I scream for you
Hurry I'm fallin', I'm fallin', I'm fallin'

[Chorus]

Hurry I'm fallin'


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 23:30:32 / Músin

lok 2006 og byrjun 2007.. nýtt ár og ný tækifæri...?

Jæja ekkert að gera...eða jú eiginlega alveg helling. Ætla samt að troða orðum hérna inn þó ég viti nú að flestar heimsóknirnar eru örugglega eftir sjálfa mig.... :S Ég get þó logið að sjálfri mér...
Alla vegana...

Missti af litlu jólunum í bakaríinu því ég þurfti að fara suður degi fyrr en ég ætlaði en það var í lagi þar sem ég fékk þá tíma til að hitta Erlu, Önnu og Söru... hitti líka vinkonur hennar Erlu sem voru fínar. :) Héltum upp á afmælið hennar Erlu með stæl... þó ég haldi að Erla hafi haldið því mest uppi. Fórum í bíó þar sem einhver hafði ælt sýningunni áður eða eitthvað... ég held að ég hafi verið eina sem hafi fundið lyktina. Vibbi sko... en góð mynd samt. Mæli með "The Holiday".
Daginn eftir hitti ég Steinnunni smá og fór með henni, Álfheiði og Hafrúnu út að borða.
Vaknaði snemma til að fara á BSÍ því ég þurfti að ná rútunni til Keflavíkur. Eyddi svo ágætum tíma bara þarna í fríhöfninni, þar sendi ég b.t.w. myndina. Mér líður nefnlega oft eins og Forrest Gump þegar ég sit svona ein með sjálfri mér og mínum hugsunum.

Danmerkurferð: Komst út og tók lestina þó ég hafði ekki hugmynd hvort ég væri að taka rétta lest eða ekki. Var samt rétta lest bara vitlausu megin... First class... piff! :S
Alla vegana komst til Bjössa á endanum.
Punktar yfir ferðina...
* fór til Sísíar og skemmti mér konunglega.
* prófaði að sitja scotter...nokkuð nett
* chillaði með strákunum
* fór í verslunarferð til Århus ein
* verslunarferð í Horsens nokkrum sinnum
      - komst að pönnukökur með súkkulaði og ís eru stórhættulegar í alla staði :), spyrjið bara jakkann minn. Talandi um líka um sykurlost!
* fór til Köben með Bjössa, Hilmari og Maríu. Þar sem ég náði að missa völd á veskinu mínu og eyddi virkilega tíma í að máta föt :S (hlutir gerast)
* svaf í tjaldi..innandyra.
* fór í Tívolíið og fór í 2 tæki.. :)
* gerði tilraun á meðan ég var í Horsens og kíkti í ljós. Tilraun furðuleg og skrýtin :S og komst að því að "brúnkan" endist bara í 2-3 tíma.  Piff!!

Komst heim og allt bara vesen... Töskurnar okkar og hjá helminginum á flugvélinni var skilin eftir í Köben og við fengum ekki fötin okkar fyrr en daginn eftir og ég átti morgunvélina heim daginn eftir.
Var svo föst í Reykjavík í 1 og hálfan dag sem ég eyddi fyrir sjónvarpið. Ég var meira segja farin að íhuga að það væri komið of mikið af hinu góða. 8| Sveik næstum vin minn þarna.. Við erum sátt núna, engar áhyggjur :)

Hátíðirnar: Eyddi þeim í að vinna sem kemur svo sem ekkert á óvart því ég fór algjörlega yfir markið á debetkortinu :S Allt er gott í hófi...:$ Danmerkurferðin var "hófið".
Eyddi svo góðum jólum með fjölskyldunni og borðaði yfir mig af alls konar mat og góðgæti sem ég myndi kannski ekki leyfa mér hvern einasta dag. Ekki var það verra að ég fékk góðar gjafir sem ég er mjög ánægð með. :)
Fór svo á áramótadiskótekið og skemmti mér alveg nokkuð vel og gekk svo heim róleg um svona 5 leytið.
Þar á milli hef ég verið að vinna eða horfa á allt dvdið sem ég fékk í jólagjöf.

GLEÐILEGT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA/ ÞAU GÖMLU

Nýja árið: Jóakim átti afmæli og náði að borða aftur helling sem ég ætti ekki einu sinni að hugsa um. Hef svo bara verið að vinna.
Verð samt að segja ykkur eitt sem ég gerði spes þarna í...fyrradag. Mamma er búin að ákvaða fyrir löngu að taka til skólabókunum okkar Jóakims og sá dagur kom í fésið á mér þá. Aldrei segi ég ykkur hefur verið svona mikið drasl út um allt í herberginu mínu... alla vegana man ég ekki eftir svoleiðis. :$ Þetta var dót frá leikskóla og upp í menntaskóla. Byrjaði að taka til strax og ég kom heim úr vinnunni og vorum búnar með matarpásu um hálf 00. Ég henti sko alveg helling en það er sumt sem verður geymt til betri tíma, fann gömul ljóð, teikningar o.s.frv. Fann út að ég hef verið lengur kaldhæðin en ég hélt..kemst alla vegana niður í 9 ára bekk. Samdi líka ævisögu sem ég sagði vera hryllingssögu...lokaorð ævisögunar voru "vonandi dóstu ekki!" Mamma segir að hún ætli að nota hana eitthvern tímann á móti mér...úps!

Vil svo hér að lokum þakka öllum sem hafa gert dagana skemmtilegri á einhvern eða annan hátt....
Later dudes!


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 00:56:09 / Músin

Því skildi það vera?

Var aðeins að pæla aftur... svona mikill tími með sjálfri mér gefur mér endilausan tíma til að pæla í hlutunum. :S
Alla vegana var sem áður að vinna og var að fylla á kælarinn og fór að horfa á eplasafann aðeins.. stendur á fernunni 35% ávaxtasafi... bíddu bíddu...?!8| Ávaxtasafi, á þetta ekki að vera EPLAsvali? Skoða þá fernuna aðeins betur. Það eru 32% eplasafi og svo 3% appelsínusafi. Hverjum datt í hug að setja appelsínusafa í eplasvala?? Og svo er sítrónusýra...
ÞVÍ SKILDI ÞAÐ VERA?
ef ég vildi vera eitthvað að drekka blandaðan svala myndi ég nú bara drekka sumarsvalann... meira ruglið.
Stórt samsæri krakkar mínir. Vera að troða í okkur appelsínum þó það hafi aldrei verið í huga okkar að fá okkur svoleiðis. Þó 3% séu ekki neitt samt sem áður...

þarf að segja ykkur síðar hvað ég var dugleg í gær... þarf kannski að fara að sofa. Vinna kl. 6. Eða á ég kannski að vaka bara...:$ ekki eins og mér hafi ekki tekist svoleiðis áður


» 4 hafa sagt sína skoðun


Klukkan